Almennar fréttir

09. mars 2009

Tilkynning frá Nýja Kaupþingi og ÍAV

Nýja Kaupþing og ÍAV hafa átt í viðræðum um endurskipulag á efnahag fyrirtækisins og tengdra félaga. Niðurstaða í viðræðunum liggur ekki fyrir en ÍAV fellur að verklagsreglum Nýja Kaupþings um úrlausn útlánavandamála sem settar hafa verið fram af bankanum. Miðað við núverandi afborganaferli lána, gengis og vaxtastig reyndist hins vegar nauðsynlegt að endursemja um lán félagsins við bankann.

Með endurskipulagningunni er stefnt að því að tryggja að starfsemi ÍAV haldi áfram með óbreyttum hætti.

Nýja Kaupþing og ÍAV harma ótímabæran fréttaflutning af málefnum ÍAV.

Twitter Facebook
Til baka

Seðlabanki Íslands
27. janúar 2023

Seðlabanki Íslands

Samningur um endurbætur og stækkun á byggingu Seðlabanka Íslands var undirritaður rafrænt þann 29. desember. Verkið felst í að rífa niður og endurbyggja rými á jarðhæð, 1. hæð og 2. hæð ásamt því að reisa nýbyggingu í hjarta bankans í tengslum við aðalinngang og móttöku.

Nýtt knattspyrnuhús fyrir íþróttafélagið Hauka
22. desember 2022

Nýtt knattspyrnuhús fyrir íþróttafélagið Hauka

Samningur um byggingu 1. áfanga nýs knatthúss fyrir íþróttafélagið Hauka á svæði félagsins á Völlunum í Hafnarfirði var undirritaður í ráðhúsi Hafnarfjarðar þann 28. nóvember. Um er að ræða reisingu og heildarfrágang á stálgrindarhúsi með steyptum veggjum yfir löglegan knattspyrnuvöll þar sem fram eiga að geta farið keppnisleikir í hvaða móti sem er. Enn fremur verður steypt þjónustubygging við enda vallarins sem ekki verður gengið frá að innan. Af tilefni undirritunar samningsins höfðu Hafnfirðingar látið baka glæsilega tertu í líki hússins

Fréttasafn