Almennar fréttir

11. ágúst 2014

Trésmiðir og rafvirkjar óskast til ÍAV

Trésmiðir og rafvirkjar óskast til ÍAV

Við hjá ÍAV leitum nú að röskum trésmiðum og rafvirkjum til að starfa með okkur að spennandi og krefjandi verkefnum sem framundan eru. Helstu verkefni félagsins um þessar mundir eru á höfuðborgarsvæðinu, á suðurnesjum og á Akranesi. 

Nú er um að gera að sækja um á heimasíðu félagsins www.iav.is

Twitter Facebook
Til baka

Seðlabanki Íslands
27. janúar 2023

Seðlabanki Íslands

Samningur um endurbætur og stækkun á byggingu Seðlabanka Íslands var undirritaður rafrænt þann 29. desember. Verkið felst í að rífa niður og endurbyggja rými á jarðhæð, 1. hæð og 2. hæð ásamt því að reisa nýbyggingu í hjarta bankans í tengslum við aðalinngang og móttöku.

Nýtt knattspyrnuhús fyrir íþróttafélagið Hauka
22. desember 2022

Nýtt knattspyrnuhús fyrir íþróttafélagið Hauka

Samningur um byggingu 1. áfanga nýs knatthúss fyrir íþróttafélagið Hauka á svæði félagsins á Völlunum í Hafnarfirði var undirritaður í ráðhúsi Hafnarfjarðar þann 28. nóvember. Um er að ræða reisingu og heildarfrágang á stálgrindarhúsi með steyptum veggjum yfir löglegan knattspyrnuvöll þar sem fram eiga að geta farið keppnisleikir í hvaða móti sem er. Enn fremur verður steypt þjónustubygging við enda vallarins sem ekki verður gengið frá að innan. Af tilefni undirritunar samningsins höfðu Hafnfirðingar látið baka glæsilega tertu í líki hússins

Fréttasafn