Almennar fréttir

14. júní 2015

Trésmiðir

ÍAV óskar eftir að ráða trésmiði til starfa í þjónustudeild fyrirtækisins.

Þjónustudeildin sinnir ýmiskonar viðhalds- og þjónustuverkefnum á höfuðborgarsvæðinu. Við leitum að metnaðarfullum trésmiðum með ríka þjónustulund gagnvart viðskiptavinum.

Starfið fellst meðal annars í viðhaldsverkefnum, breytingarvinnu, útkallsþjónustu og nýsmíði.

Menntun og hæfniskröfur eru eftirfarandi:

•  Sveinsbréf í iðngreininni

•  Vinnuvélaréttindi er kostur

•  Almenn snyrtimennska

•  Þekking, reynsla og sjálfstæði í starfi

•  Fjölþætt reynsla af viðhaldsvinnu er kostur

•  Reglusemi og stundvísi

 

Nánari upplýsingar veitir Magni Helgason mannauðsstjóri í síma 530 4200.

Umsóknir óskast fylltar út á heimasvæði okkar www.iav.is - laus störf, umsóknarfrestur er til 1.júlí.

Twitter Facebook
Til baka

Fjölnota farþegamiðstöð á Skarfabakka
06. júní 2023

Fjölnota farþegamiðstöð á Skarfabakka

Mánudaginn 5 júní var tilkynnt um niðurstöðu í samkeppni um byggingu Fjölnota farþegamiðstöð á Skarfabakka Um forval og svo alútboð var að ræða. Þrír hópar voru forvaldir og tóku þátt í samkeppni um gæði lausnar, verð og teymið. Það er ánægjulegt að upplýsa um að ÍAV ásamt VSÓ og Brokkr stúdio voru með allra bestu lausnina og sigruðu samkeppnina.

Nýr Suðurlandsvegur milli Hveragerðis og Selfoss opnaður formlega
06. júní 2023

Nýr Suðurlandsvegur milli Hveragerðis og Selfoss opnaður formlega

25.maí 2023 var 2.áfangi nýs Suðurlandsvegar milli Hveragerðis og Selfoss formlega opnaður með glæsilegri athöfn Vegagerðarinnar, 5 mánuðum fyrir áætluð verklok. Nánari umfjöllun um verkið og myndir frá athöfninni má finna á heimasíðu Vegagerðarinnar: https://www.vegagerdin.is/upplysingar-og-utgafa/frettir/nyr-sudurlandsvegur-milli-hveragerdis-og-selfoss-opnadur-formlega

Fréttasafn