Almennar fréttir

09. mars 2009

Tveimur kílómetrum náð í Bolungarvíkurgöngum

Vinna við gröft Bolungarvíkurganga gengur vel.  Frá Hnífsdal voru sprengdir 49 metrar í síðustu viku og er heildarlengd þeim megin orðin 986 metrar.  Frá Bolungavík voru sprengdir 42 metrar og er heildarlengd þeim megin frá orðin 1.033 metrar. 

Samtals er því búið að sprengja 2.019 metra eða tæplega 40% af heildarlengd ganganna sem verða 5.1 kílómetri að lengd.  Áætlað er að búið verði að sprengja göngin um mánaðarmótin júlí / ágúst.

Twitter Facebook
Til baka

Seðlabanki Íslands
27. janúar 2023

Seðlabanki Íslands

Samningur um endurbætur og stækkun á byggingu Seðlabanka Íslands var undirritaður rafrænt þann 29. desember. Verkið felst í að rífa niður og endurbyggja rými á jarðhæð, 1. hæð og 2. hæð ásamt því að reisa nýbyggingu í hjarta bankans í tengslum við aðalinngang og móttöku.

Nýtt knattspyrnuhús fyrir íþróttafélagið Hauka
22. desember 2022

Nýtt knattspyrnuhús fyrir íþróttafélagið Hauka

Samningur um byggingu 1. áfanga nýs knatthúss fyrir íþróttafélagið Hauka á svæði félagsins á Völlunum í Hafnarfirði var undirritaður í ráðhúsi Hafnarfjarðar þann 28. nóvember. Um er að ræða reisingu og heildarfrágang á stálgrindarhúsi með steyptum veggjum yfir löglegan knattspyrnuvöll þar sem fram eiga að geta farið keppnisleikir í hvaða móti sem er. Enn fremur verður steypt þjónustubygging við enda vallarins sem ekki verður gengið frá að innan. Af tilefni undirritunar samningsins höfðu Hafnfirðingar látið baka glæsilega tertu í líki hússins

Fréttasafn