Almennar fréttir

26. apríl 2016

Undirritun verksamnings í Smáralind

ÍAV og Eignarhaldsfélagið Smáralind skrifuðu undir verksamning þann 19. apríl 2016 um breytingar á  Smáralindinni.

Verksamningurinn er stýriverktökusamningur og er verkið þegar hafið.

Fyrsti áfangi verksins felst í minnkun verslunar Hagkaups um 5.000 m² og endurskipulagningu þess svæðis  fyrir minni verslanir og gönguleiðir.

Þessum fyrsta áfanga í austur enda hússins á að vera lokið þann 1. nóvember 2016.

Síðari áfangar verksins eru breytingar í vestur enda Smáralindar sem eru áformaðar á næsta ári og breytingar á ytra umhverfi verslunarmiðstöðvarinnar sem verða væntanlega unnar 2017 eða 2018.

Twitter Facebook
Til baka

Seðlabanki Íslands
27. janúar 2023

Seðlabanki Íslands

Samningur um endurbætur og stækkun á byggingu Seðlabanka Íslands var undirritaður rafrænt þann 29. desember. Verkið felst í að rífa niður og endurbyggja rými á jarðhæð, 1. hæð og 2. hæð ásamt því að reisa nýbyggingu í hjarta bankans í tengslum við aðalinngang og móttöku.

Nýtt knattspyrnuhús fyrir íþróttafélagið Hauka
22. desember 2022

Nýtt knattspyrnuhús fyrir íþróttafélagið Hauka

Samningur um byggingu 1. áfanga nýs knatthúss fyrir íþróttafélagið Hauka á svæði félagsins á Völlunum í Hafnarfirði var undirritaður í ráðhúsi Hafnarfjarðar þann 28. nóvember. Um er að ræða reisingu og heildarfrágang á stálgrindarhúsi með steyptum veggjum yfir löglegan knattspyrnuvöll þar sem fram eiga að geta farið keppnisleikir í hvaða móti sem er. Enn fremur verður steypt þjónustubygging við enda vallarins sem ekki verður gengið frá að innan. Af tilefni undirritunar samningsins höfðu Hafnfirðingar látið baka glæsilega tertu í líki hússins

Fréttasafn