Undirstöður steyptar í Helguvík
ÍAV steyptu í dag fyrstu undirstöðurnar að kerskála álvers Norðuráls í Helguvík.Í kerskálann fullbyggðan er gert ráð fyrir að fari um 36.000 rúmmetrar af steypu og 60.000 rúmmetrar í álverið fullbyggt.Undirbúningsframkvæmdir við jarðvinnu, vegalagningu og aðra aðstöðusköpun á svæðinu hafa staðið yfir frá því í mars á þessu ári.