Almennar fréttir

17. október 2008

Vélaverkstæði við Melabraut í Hafnarfirði

ÍAV byggðu Við Melabraut á Hvaleyraholtinu í Hafnafirði stálgrindarverkstæði fyrir Vélaverkstæði Hjalta. Í verkinu fólst að reisa 900 fermetra skemmu og 300 fermetra steinsteypt geymslurými. Stálgrindarskemman var klædd með einangrunarpanil úr áli.

Hafist var handa við að byggja skemmuna í desember 2007, en áður hafði hús verið rifið sem stóð á byggingarstaðnum.  Verklok voru í september 2008.

Twitter Facebook
Til baka

Seðlabanki Íslands
27. janúar 2023

Seðlabanki Íslands

Samningur um endurbætur og stækkun á byggingu Seðlabanka Íslands var undirritaður rafrænt þann 29. desember. Verkið felst í að rífa niður og endurbyggja rými á jarðhæð, 1. hæð og 2. hæð ásamt því að reisa nýbyggingu í hjarta bankans í tengslum við aðalinngang og móttöku.

Nýtt knattspyrnuhús fyrir íþróttafélagið Hauka
22. desember 2022

Nýtt knattspyrnuhús fyrir íþróttafélagið Hauka

Samningur um byggingu 1. áfanga nýs knatthúss fyrir íþróttafélagið Hauka á svæði félagsins á Völlunum í Hafnarfirði var undirritaður í ráðhúsi Hafnarfjarðar þann 28. nóvember. Um er að ræða reisingu og heildarfrágang á stálgrindarhúsi með steyptum veggjum yfir löglegan knattspyrnuvöll þar sem fram eiga að geta farið keppnisleikir í hvaða móti sem er. Enn fremur verður steypt þjónustubygging við enda vallarins sem ekki verður gengið frá að innan. Af tilefni undirritunar samningsins höfðu Hafnfirðingar látið baka glæsilega tertu í líki hússins

Fréttasafn