Almennar fréttir

04. febrúar 2010

Verklok í Furugerði

ÍAV afhentu fyrir skemmstu íbúðir, baðaðstöðu og matsal við Furugerði 1.

Verkefnið var unnið fyrir Félagsbústaði og fólst í að byggt var ofan á fjölbýlishúsið við Furugerði. Afhentar voru sex þjónustuíbúðir fyrir aldraða ásamt baðaðstöðu á efstu hæðinni. Einnig var matsalur á fyrstu hæð hússins stækkaður. Íbúðirnar eru allar hinar glæsilegustu og útsýnið til allra átta stórkostlegt.

Twitter Facebook
Til baka

Fjölnota farþegamiðstöð á Skarfabakka
06. júní 2023

Fjölnota farþegamiðstöð á Skarfabakka

Mánudaginn 5 júní var tilkynnt um niðurstöðu í samkeppni um byggingu Fjölnota farþegamiðstöð á Skarfabakka Um forval og svo alútboð var að ræða. Þrír hópar voru forvaldir og tóku þátt í samkeppni um gæði lausnar, verð og teymið. Það er ánægjulegt að upplýsa um að ÍAV ásamt VSÓ og Brokkr stúdio voru með allra bestu lausnina og sigruðu samkeppnina.

Nýr Suðurlandsvegur milli Hveragerðis og Selfoss opnaður formlega
06. júní 2023

Nýr Suðurlandsvegur milli Hveragerðis og Selfoss opnaður formlega

25.maí 2023 var 2.áfangi nýs Suðurlandsvegar milli Hveragerðis og Selfoss formlega opnaður með glæsilegri athöfn Vegagerðarinnar, 5 mánuðum fyrir áætluð verklok. Nánari umfjöllun um verkið og myndir frá athöfninni má finna á heimasíðu Vegagerðarinnar: https://www.vegagerdin.is/upplysingar-og-utgafa/frettir/nyr-sudurlandsvegur-milli-hveragerdis-og-selfoss-opnadur-formlega

Fréttasafn