Almennar fréttir

12. september 2009

Verklok og vígsla í Ölgerðinni

Í ágúst lauk vinnu ÍAV við nýtt 12.500 fermetra lager og skrifstofuhúsnæði fyrir ölgerð Egils Skallagrímssonar við Grjótháls 7- 11 í Reykjavík. Um er ræða fjögurra hæða byggingu sem hýsir nú skrifstofur starfsmanna, tæknirými auk lagers Ölgerðarinnar og Danól en þau fyrirtæki sameinuðust 1. janúar 2008, undir nafni Ölgerðarinnar.

Við verkið störfuðu um 120 starfsmenn ÍAV og undirverktaka þegar mest var en framkvæmdir hófust í byrjun árs 2008. Byggingin var formlega vígð í dag við hátíðlega athöfn. ÍAV óskar stjórnendum og starfsmönnum Ölgerðarinnar til hamingju með glæsilega byggingu.

Twitter Facebook
Til baka

Fjölnota farþegamiðstöð á Skarfabakka
06. júní 2023

Fjölnota farþegamiðstöð á Skarfabakka

Mánudaginn 5 júní var tilkynnt um niðurstöðu í samkeppni um byggingu Fjölnota farþegamiðstöð á Skarfabakka Um forval og svo alútboð var að ræða. Þrír hópar voru forvaldir og tóku þátt í samkeppni um gæði lausnar, verð og teymið. Það er ánægjulegt að upplýsa um að ÍAV ásamt VSÓ og Brokkr stúdio voru með allra bestu lausnina og sigruðu samkeppnina.

Nýr Suðurlandsvegur milli Hveragerðis og Selfoss opnaður formlega
06. júní 2023

Nýr Suðurlandsvegur milli Hveragerðis og Selfoss opnaður formlega

25.maí 2023 var 2.áfangi nýs Suðurlandsvegar milli Hveragerðis og Selfoss formlega opnaður með glæsilegri athöfn Vegagerðarinnar, 5 mánuðum fyrir áætluð verklok. Nánari umfjöllun um verkið og myndir frá athöfninni má finna á heimasíðu Vegagerðarinnar: https://www.vegagerdin.is/upplysingar-og-utgafa/frettir/nyr-sudurlandsvegur-milli-hveragerdis-og-selfoss-opnadur-formlega

Fréttasafn