Verksamningur við Mílu
Þann 6. júlí síðastliðinn undirrituðu ÍAV og Míla verksamning um lagningu ljósleiðara á Höfuðborgarsvæðinu.
Verkið er hafið og er Gunnar Páll Viðarsson verkefnisstjóri og Gunnar Guðmundsson verkstjóri verkefnisins.
Þoroddur Ottesen framkvæmdastjóri fjármála hjá ÍAV og Jón Kristjánsson forstjóri Mílu undirrituðu samninginn.