Almennar fréttir

20. febrúar 2012

Viðhaldssamningur vegna íbúða á gamla Varnarsvæðinu

ÍAV þjónusta hefur gert þjónustusamning sem felur í sér útkallsþjónustu, símavakt allan sólahringinn og tilfallandi viðhald sem óskað er eftir af verkkaupa, vegna 700 íbúða á Ásbrú.

Nú er búið í um 700 íbúðum á gamla varnarsvæðinu og eru íbúar um 1900 talsins. Þegar Varnarliðið var á svæðinu voru íbúar hinsvegar um 2800 talsins.

Um þessar mundir er að ljúka árlegri skoðun á eldvarnarkerfum og vatnsúðakerfum sem eru í byggingunum sem búið er í.

 

Twitter Facebook
Til baka

Fjölnota farþegamiðstöð á Skarfabakka
06. júní 2023

Fjölnota farþegamiðstöð á Skarfabakka

Mánudaginn 5 júní var tilkynnt um niðurstöðu í samkeppni um byggingu Fjölnota farþegamiðstöð á Skarfabakka Um forval og svo alútboð var að ræða. Þrír hópar voru forvaldir og tóku þátt í samkeppni um gæði lausnar, verð og teymið. Það er ánægjulegt að upplýsa um að ÍAV ásamt VSÓ og Brokkr stúdio voru með allra bestu lausnina og sigruðu samkeppnina.

Nýr Suðurlandsvegur milli Hveragerðis og Selfoss opnaður formlega
06. júní 2023

Nýr Suðurlandsvegur milli Hveragerðis og Selfoss opnaður formlega

25.maí 2023 var 2.áfangi nýs Suðurlandsvegar milli Hveragerðis og Selfoss formlega opnaður með glæsilegri athöfn Vegagerðarinnar, 5 mánuðum fyrir áætluð verklok. Nánari umfjöllun um verkið og myndir frá athöfninni má finna á heimasíðu Vegagerðarinnar: https://www.vegagerdin.is/upplysingar-og-utgafa/frettir/nyr-sudurlandsvegur-milli-hveragerdis-og-selfoss-opnadur-formlega

Fréttasafn