ÍAV afhendir 150 herbergja hótel í Reykjanesbæ
ÍAV afhenti Aðaltorgi ehf. 150 herbergja hótel við Aðaltorg í Reykjanesbæ þann 15.apríl 2020. Hótelið er hluti af Marriott keðjunni og verður rekið undir nafninu Courtyard by Marriott. Verktíminn var tæp tvö ár og á framkvæmdatímanum voru um 105 manns við störf þegar mest var. Myndband sem sýnir nokkur atriði framkvæmdarinnar má sjá hér.