ÍAV afhendir íbúðir í 201 Smára
ÍAV afhenti í byrjun ágúst sl. síðustu 19 íbúðirnar í Sunnusmára í Kópavogi. Frá því að framkvæmdir hófust þar árið 2017 hefur ÍAV byggt samtals 213 íbúðir í sex húsum, auk bílakjallara. Með því lýkur framkvæmdum á reitum A01, A02 og A10. Á verktímanum komu 80-90 manns að verkinu, 120 þegar mest var.