ÍAV heldur áfram byggingu fjölnota íþróttahúss í Garðabæ
Framkvæmdir við fjölnota íþróttahús í Garðabæ halda áfram. Verkið hefur tafist um tæplega eitt ár vegna þess að jarðvegurinn reyndist ekki vera eins burðarhæfur og reiknað var með í upphafi. Þetta er leyst þannig að sementi og jarðvegi er hrært saman í súluknippi, stálrör eru síðan rekin í gegnum súlurnar samhliða því sem rörin eru fyllt af steypu. Í framhaldinu hefst vinna við að reisa stálgrind hússins, það verður svo klætt með einingum á hliðum og þaki. Áætluð verklok eru í janúar 2022.
Hér er myndband sem útskýrir aðferðina sem notuð er við að auka burðarhæfi jarðvegsins: