ÍAV í framkvæmdum á öryggissvæði Keflavíkurflugvallar
ÍAV hefur frá haustinu 2019 unnið að framkvæmdum á öryggissvæði Keflavíkurflugvallar, nánar tiltekið á þeim hluta sem tilheyrir gamla varnarsvæðinu. Unnið hefur verið að endurbótum á steyptum flugvélastæðum ásamt endurnýjun á þéttiefni á öllum steypuskilum. Einnig við endurnýjun ídráttarlagna og brunna fyrir hliðarljós, uppsetningu miðlínuljósa á fimm akbrautum ásamt breikkun á einni akbraut. Sett hefur verið upp olíuskilja ásamt settjörn og innsteyptar rennur til mengunarvarna. Áætlað er að verkinu ljúki fyrir árslok.