ÍAV og Marti gera nýjan samning við Norsku vegagerðina
ÍAV og Marti hafa gert um 10 milljarða króna samning við Norsku vegagerðina um byggingu 5,8 km jarðganga undir Norðnesfjall í sveitarfélaginu Kåfjord í norður Noregi, ekki langt frá Tromsø.
Samningurinn nær til gerð jarðgangnanna ásamt brú yfir Manndalsána og er reiknað með að framkvæmdir hefjist núna í desember.
Sjá frétt á www.bygg.no og staðsetningu á Google Map