ÍAV óskar Víkingi til hamingju með bikarmeistaratitilinn
Víkingar eru bikarmeistarar í knattspyrnu karla eftir glæsilegan sigur gegn FH. Víkingar voru sterkari aðilinn í leiknum og spiluðu hreint út sagt frábærlega. Það var Óttar Magnús Karlsson sem skoraði mark Víkings í 1-0 sigri, en markið kom úr vítaspyrnu í seinni hálfleik. Þetta er fyrsti stóri titill Víkings í 28 ár og fyrsti sigur í bikarkeppni frá árinu 1971. Glæsilegur árangur hjá þessu frábæra liði sem mun því spila í Evrópudeildinni á næsta tímabili.
Þess má geta hér að Óttar Magnús er sonur Karls Þráinssonar fyrrverandi starfsmanns og forstjóra ÍAV.
Myndir:Fótbolti.net