ÍAV sér um fullnaðarfrágang nýrra aðalstöðva Landsbankans við Austurhöfn
Þann 30. júní 2020 undirrituðu fulltrúar Landsbankans og Íslenskra aðalverktaka verksamning vegna húss Landsbankans Austurbakka 2 - Fullnaðarfrágangur. Um er að ræða fullnaðarfrágang á húsinu að utan sem innan, húsið er í nokkrum byggingarhlutum og er hæst fimm hæðir með bílakjallara á tveimur hæðum. Skrifstofu-, verslunar- og þjónusturými í húsinu er 16.500 m2 auk tæknirýma og bílakjallara sem nýtist öllu svæðinu. Afhending á rýmum til verkkaupa er í áföngum og er fyrsta afhendingin 1. september 2021 og verklok áætluð í apríl 2022.