Íbúðir við Herjólfsgötu í Hafnarfirði
Unnið er að byggingu 49 íbúða við Herjólfsgötu 36 - 40 í Hafnarfirði fyrir 60 ára og eldri. Þetta eru 3 fjögurra hæða fjölbýlishús með 16 íbúðum hvert auk húsvarðaíbúðar. Bílageymsla fylgir húsunum og er gert ráð fyrir 44 stæðum í henni. Íbúðirnar eru 2-3 herbergja og er skilað fullbúnum án gólfefna, en með flísalögðum baðherbergjum- og þvottahúsgólfum. Lóð verður fullfrágengin með snjóbræðslulögnum í bílageymslurömpum, auk hluta hellulagðra og mynstursteypra göngustíga og bílastæða. Sameign verður fullfrágengin með flísalögðu anddyri og teppalögðu stigahúsi.
Íbúðirnar verða afhentar í nóvember og desember 2005 og mars 2006.