Útboð lóða í Þrastarhöfða
Föstudaginn 11. mars rann út frestur til að skila inn tilboðum í lóðir við Þrastarhöfða í Mosfellsbæ. Um er að ræða 13 einbýlishúsalóðir og eina parhúsalóð.Alls bárust 638 tilboð í lóðirnar frá 80 aðilum.
Hæstu boð í einbýlishúsalóðirnar voru á bilinu 12,5 – 15 milljónir króna. Lóðirnar verða byggingarhæfar 15. júlí nk.