Afkoma ÍAV 2000
Hagnaður Íslenskra aðalverktaka hf. (ÍAV) nam 202,9 milljónum króna árið 2000 að teknu tilliti til reiknaðra skatta en hagnaður var 206,8 millj.kr árið 1999.
Ársreikningur Íslenskra aðalverktaka hf. hefur að geyma samstæðureikning félagsins
og dótturfélaga. Hann er gerður eftir sömu reikningsskilaaðferð og árið áður.
Rekstrartekjur samstæðunnar námu samtals 9.737 milljónum króna.
Samkvæmt efnahagsreikningi námu heildareignir ÍAV samstæðunnar 8.769 milljónum króna. Bókfært eigið fé í árslok 2000 var 2.990 millj.kr. og eiginfjárhlutfall var 34,1 %. Veltufé frá rekstri var 458 millj.kr. samanborið við 538 milljónir á árinu 1999. Veltufjárhlutfall samstæðunnar var 1,37 í árslok 2000.
Að meðaltali störfuðu 822 starfsmenn hjá félaginu á árinu 2000.
Stjórn Íslenskra aðalverktaka samþykkti á fundi sínum í dag að leggja til við aðalfund sem haldinn verður 10. apríl nk. að greiddur verði 7 % arður til hluthafa.
Ársreikningur félagsins mun liggja frammi á skrifstofu félagsins viku fyrir aðalfund.