Gæðastefna ÍAV
Viðskiptavinir og hagsmunaaðilar
Færni, frumkvæði og fagmennska starfsmanna ÍAV leiði til hagkvæmra og eftirsóttra lausna fyrir viðskiptavini.Starfsfólk ÍAV leggi áherslu á virðingu og traust í samskiptum við viðskiptavini, hagsmunaaðila og sín á milli.
Starfsmenn
- Unnið verði markvisst að því að hækka þekkingarstig starfsmanna í nýráðningum og með endur- og símenntun.
- Starfsfólki verði gefinn kostur á krefjandi verkefnum sem fullnægja metnaði þeirra og reynslu og sveigjanleika í starfi.
Öryggi, umhverfi og gæði
- ÍAV verði gæðavottað skv. ISO 9001 árið 2009, og fái umhverfisvottun og öryggisvottun í kjölfarið.
Samfélag
- Fyrirtækið verði virkur þátttakandi í samfélaginu m.a. með stuðningi við íþrótta-, menningar-, æskulýðs- og líknarstarf, eftir því sem aðstæður leyfa hverju sinni.Einnig með þátttöku í kennslu, rannsóknarverkefnum og faglegu starfi á starfssviði félagsins.
Rekstur
- Velta ÍAV aukist árlega bæði innanlands og utan.Að ÍAV verði leiðandi í landþróunarverkefnum og á húsnæðismarkaði með þróun nýrra leiða í samningum, fjármálum, efnisvali og útfærslum.