Hagnaður 271 milljónir að teknu tilliti til reiknaðra skatta samanborið við 182 milljónir árið áður
Á stjórnarfundi Íslenskra aðalverktaka hf. þann 27. febrúar 2003 var ársreikningur fyrir árið 2002 staðfestur. Ársreikningur Íslenskra aðalverktaka hf. hefur að geyma samstæðureikning félagsins og dótturfélaga þess. Hann er gerður eftir sömu reikningsskilaaðferðum og árið áður.
Rekstrartekjur samstæðu Íslenskra aðalverktaka hf. námu 7.947 milljónum króna á árinu 2002, samanborið við 8.559 milljónir króna á árinu 2001. Hagnaður fyrir fjármagnsliði, skatta og afskriftir (EBITDA) var 522 milljón króna, samanborið við 1.016 milljónir króna á árinu 2001. Hagnaður fyrir fjármagnsliði og skatta nam 221 milljónum króna á móti 706 milljónum króna á árinu 2001. Hagnaður félagsins fyrir skatta, að teknu tilliti til afkomu hlutdeildarfélags nam 347 milljónum króna samanborið við 102 milljónir króna á árinu 2001. Að teknu tilliti til reiknaðra skatta nam hagnaður félagsins á árinu 2002 271 milljónum króna samanborið við 182 milljónir króna árinu 2001.