Hlutur ríkisins í ÍAV til sölu
Hlutur íslenska ríkisins í ÍAV hf hefur verið auglýstur til sölu og er tilboðsfrestur til 21. mars 2003. Um er að ræða 39,86% af heildarhlutafé félagsins. Hópur starfsmanna ÍAV hefur þegar tilkynnt Framkvæmdanefnd um einkavæðingu að gert verði tilboð á vegum stjórnenda og starfsmanna félagsins í hlutinn.