Nýjar glæsilegar Íbúðir til sýnis í Mánatúni 6
Laugardaginn 24. nóvember 2001 var opið hús í Mánatúni 6 og lagði mikill fjöldi fólks leið sína þangað. Þar gafst gestum kostur á að skoða fullbúnar íbúðir sem ÍAV mun afhenda í byrjun desember 2001. Frágangur og gæði í Mánatúni er sambærilegur og á íbúðum við Laugarnesveg 87 og 89, en sala þar hófst í nóvember 2001.
Húsin eru einangruð og klædd að utan og þarfnast því lágmarksviðhalds. Innréttingar eru frá Brúnás innréttingum og gefst kaupendum kostur á að velja á milli þriggja viðartegunda, beyki, eik eða maghony. Sérstaklega er hugað að hljóðeinangrun auk þess er dyrasími tengdur myndavél í anddyri í öllum íbúðum.