Verkflokkur

21. apríl 2006

Endurnýjun flugbrautarljósa á Keflavíkurflugvelli

Verkkaupi: Varnarliðið á Keflavíkurflugvelli

Verk hafið: Maí 2000

Verklok: Júlí 2001

Stutt lýsing á verki: Endurnýjun flugbrautarljósa á Keflavíkurflugvelli. Sett voru upp ný aðflugsljós á báðar flugbrautirnar og allir rafstrengir og spennar endurnýjaðir í flugbrautunum. Þá var einnig verið unnið að malbiksviðgerðum og merkingum á brautunum.

 

Í júlí 2001 skiluðu Íslenskir aðalverktakar verki sem fólst í endurnýjun flugbrautarljósa á Keflavíkurflugvelli. ÍAV voru lægst bjóðendur að loknu alþjóðlegu útboði og hófust framkvæmdir í maí 2000. Sumarið 2000 var unnið við norður-suður brautina og endurnýjað um 350 km af háspennustrengjum ásamt um 3000 spennubreytum á flugvellinum og sett upp 100 akbrautarljós. Veturinn 2000 voru svo lagnir og allir spennustillar endurnýjaðir auk þess sem vélasalur með nýjum ljósavélum var byggður við spennustöðina. Sumarið 2001 var svo unnið við austur-vestur brautina og aðflugsljósakerfið endurnýjað ásamt ýmsum frágangi. Þegar mest var unnu milli 25 og 30 starfsmenn ÍAV við verkið sem gekk mjög vel og varð engin röskun á flugsamgöngum á verktíma.

Twitter Facebook
Til baka

Fréttasafn