Frystigeymsla Norðurgarði
ÍAV tók að sér að vinna með HB. Granda að nýbyggingu á 3800m2 frystigeymslu að Norðurgarði 1.
Byggingin er um 2.600m2 frystiklefi og 1.200m2 þjónustubygging. ÍAV hefur umsjón með verkframkvæmd byggingarinnar í samræmi við þá hönnun og lausnir sem lagðar eru til af hönnuðum og HB. Granda. ÍAV kemur að hönnunarrýni og deililausnum með HB. Granda. ÍAV tekur að sér ákveðna verkþætti á föstum einingar verðum og afla tilboða frá undirverktökum í ákveðna verkþætti og hafa umsjón með vinnu þeirra og annast fjárhagslegt uppgjör gegn þóknun sem tekur mið af endanlegum verkkostnaði.