Ásakór 2 - 4
Verkkaupi: Íbúðir seldar á almennum markaði.
Verk hófst: Í september 2005
Verki lauk: Í mars 2007
Stutt lýsing á verki: Ásakór 2 - 4 í Kópavogi er þriggja hæða fjölbýlishús með sex íbúðum á hæð, samtals átján íbúðir. Íbúðum er skilað fullbúnum án gólfefna með flísalögðum baðherbergis- og þvottahúsgólfum. Hverri íbúð fylgir bílastæði í bílageymslu. Sameign og lóð er fullfrágengin með snjóbræðslulögnum í bílageymslurampa.