Íþróttamiðstöð á Álftanesi
ÍAV hófu í desember 2007 framkvæmdir við byggingu nýrrar sundlaugar og viðbyggingu við íþróttahús á Álftanesi. Um er að ræða byggingu 25 metra útisundlaugar, vaðlaugar fyrir börn, öldulaug, steypta potta og byggingu 12,5 metra langrar innilaugar ásamt viðbyggingu við íþróttahúsið. Einnig verður gengið frá undirstöðum vatnsrennibrautar sem verður allt að 10 metra há og því hæsta rennibraut á landinu.
Húsið er staðsteypt, með límtrésbitum í lofti og rúmlega 2.600 fermetrar að stærð á tveimur hæðum. Mannvirkinu verður skilað tilbúnu til notkunar, með öllum innréttingum og tækjum þann 5. desember 2008.
Verkkaupi | Eignarhaldsfélagið Fasteign hf. |
Verk hafið | Desember 2007 |
Verklok | Apríl 2009 |
Arkitektar | T. ark teiknistofan ehf. |
Burðarþol, lagnir og loftræsikerfi | VST |
Lóðahönnun | PK arkitektar |
Lagnir og loftræstikerfi | Verkfræðistofan Önn |
Raflagnahönnun | VST |
Eftirlit | VST |
64.10446,-22.01878|/media/27829/Ithrottamidstod_Alftanesi1.jpg?width=250&height=109&mode=crop|Íþróttamiðstöð á Álftanesi|/starfsemi/verk/fyrri-verk/iþrottamannvirki-og-skolar/iþrottamidstod-a-alftanesi/| ÍAV hófu í desember 2007 framkvæmdir við byggingu nýrrar sundlaugar og viðbyggingu við íþróttahús á Álftanesi.|terrain | blue | Nánar