Föstudaginn 31. janúar 2014 var undirritaður verksamningur milli innanríkisráðuneytisins og Íslenskra aðalverktaka hf. vegna verklegra framkvæmda við fangels á Hólmsheiði, hús og lóð.
Þetta útboð, hús og lóð, er annar hluti framkvæmda en áður er lokið við jarðvinnu og heimlagnir.
Verkið gengur út á að reisa og ganga frá byggingu fyrir móttöku-, gæsluvarðhalds-, og kvennafangelsi sem er um 3.595 m2 að stærð, brúttó rúmmál er 14.443m3. Heildar lóðarstærð er 37.400 m2. Lóðin stendur við Nesjavallaleið 9 á Hólmsheiði.
Verkkaupi hyggst fá alþjóðlega umhverfisvottun samkvæmt BREEAM á bygginguna en slíkt ferli tekur til margra þátta ÍAV á byggingarstað.
Fangelsið hefur verið tilnefnt til Mies van der Rohe verðlaunanna árið 2017 — sjá hér