Harpa – Tónlistar- og ráðstefnuhús

Tónlistar og ráðstefnuhúsið Harpa er um 30.000 m2 að stærð og er eitt af kennileitum Reykjavíkur. Í Hörpu eru fjórir tónlistar og ráðstefnusalir.

Stærstur salanna er Eldborg sem tekur 1.800 manns í sæti. Ráðstefnusalurinn Silfurberg tekur 750 manns í sæti en salnum er hægt að skipta upp í tvö rými. Í Norðurljósum eru sæti fyrir 450 áheyrendur og Kaldalón tekur um 200 manns í sæti. Í sölunum má finna fullkomnasta hljómflutningsbúnað í heiminum í dag.

Glerhjúpur Hörpunnar er um 12.000 m2 og samanstendur af 9.300 rúðum. Hér rís Harpa á einni mínútu.

Byggingin hýsir Sinfóníuhljómsveit Íslands og Íslensku óperuna ásamt því að vera ráðstefnuhús á heimsmælikvarða.

Harpa hlaut Mies van der Rohe verðlaunin árið 2013 – hér má nálgast bókina á vefnum.

Staðsetning

Prenta