Verk og vit

16. apríl 2024Fréttatilkynning
Verk og vit 2024

Verk og vit 2024

Íslenskir aðalverktakar hf. (ÍAV) fagna 70 ára afmæli sínu með því að taka þátt í sýningunni “Verk og vit” sem verður haldin í Íþrótta- og sýningahöllinni Laugardal 18. apríl til 21. apríl. Sjá nánar á www.verkogvit.is

Þetta er frábær vettvangur til að kynna sér allt það nýjasta í byggingariðnaði, mannvirkjagerð og skipulagsmálum, ásamt því að kynna sér spennandi vörur og þjónustu.

Hér eru upplýsingar um viðburðinn:

  • Dagsetningar: 18.-21. apríl 2024
  • Staðsetning: Íþrótta- og sýningarhöllin í Laugardal
  • Aðgöngumiði fyrir fagaðila: Kostar kr. 4.500 með vsk og gildir alla sýningardagana.
  • Aðgöngumiði fyrir almenna gesti laugardag og sunnudag:
    • Almennt verð: kr. 2.500, miðinn gildir í einn dag.
    • Verð fyrir ellilífeyrisþega/öryrkja og nema: kr. 1.500, miðinn gildir í einn dag.
    • Börn yngri en 12 ára eru með fullorðnum frítt.

Við hlökkum til að sjá þig á Verk og vit 2024!

Hægt er að nálgast miða hér: Verk og vit 2024 miðasala